25/08/2026
Jeppaferð inn í vonarskarð 5-6 september.
Nú er starfsemi klúbbsins að komast í gang að nýju og erum við búnir að plana fyrstu Litlunefndarferð tímabilsins. Við í nefndinni erum svo spenntir yfir því að verið er að fara í ferð næstu helgi að stika Vonarskarðið sem er búið að vera lokað í þó nokkur ár. Í tilefni þess verður fyrsta ferð okkar í Litlunefnd helgina eftir á Sprengisandsleið og inn í Vonarskarð sem verður gaman að keyra í gegn. Svo munum við gista inni í Nýjadal og væntanlega fara aðra leið heim.
Í þessa ferð er kostnaðurinn 10.000kr sem er fyrir gistingu og kvöldmat á laugardagskvöldinu. Miðað við er við um 40 manns í ferðina. Þegar þið skráið ykkur í ferðina er best að greiða svo í framhaldinu.
Kveðja Litlanefnd
Laugardaginn 5 september er fyrirhuguð ferð með Litlunefnd Ferðaklúbbsins 4x4 með næturgistingu. Haldið verður á Sprengisandsleið og inn í Vonarskarð en sú leið opnar um mánaðarmótin ágúst september eftir margra ára lokun. Þarna gefst fólki tækifæri til að reyna sig og sinn...