Brauðhúsið Grímsbæ

Brauðhúsið Grímsbæ Brauðhúsið er handverksbakarí þar sem megináherslan er lögð á að baka næringarrík og góð matbrauð. Brauðin eru lífrænt vottuð og úr lífrænu hráefni.

Við mælum með að hlusta á þennan skemmtilega útvarpsþátt sem er hluti af þáttaröð eftir Ragnheiði Maísól um uppruna súrd...
01/01/2025

Við mælum með að hlusta á þennan skemmtilega útvarpsþátt sem er hluti af þáttaröð eftir Ragnheiði Maísól um uppruna súrdeigsbaksturs á Íslandi.🌾

Þar er meðal annars rætt við Sigfús bakara, sem deilir sinni innsýn í handverkið og hvernig þeir bræður standa að súrdeigsbakstri í Brauðhúsinu. 🍞✨

Í þúsundir ára hefur mannfólkið bakað ilmandi súrdeigsbrauð í samstarfi við örverur súrdeigsins. En súrdeigsbakstur á Íslandi nær þó varla svo langt aftur? Hver ætli sé elsti súr á Íslandi og hvar er hann að finna? Ragnheiður Maísól Sturludóttir leggur af stað í ranns....

19/12/2024

Kæru viðskiptavinir! 🎄

Hér eru opnunartímar okkar yfir jól og áramót:

• 23. desember: Opið.
• 24. - 29. desember: Lokað.
• 30. desember: Opið.
• 31. desember - 2. janúar: Lokað.

Frá 3. janúar 2025:
Opið virka daga frá 10:00 - 17:00.

Við þökkum ykkur fyrir árið sem er að líða og hlökkum til að sjá ykkur á nýju ári! Gleðileg jól og farsælt komandi ár.

Address

Efstaland 26
Reykjavík
108

Opening Hours

Monday 10:00 - 17:00
Tuesday 10:00 - 17:00
Wednesday 10:00 - 17:00
Thursday 10:00 - 17:00
Friday 10:00 - 17:00

Telephone

+3545686530

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Brauðhúsið Grímsbæ posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Brauðhúsið Grímsbæ:

Share

Category

Saga Bakarísins í Grímsbæ

Lífræn súrdeigsbrauð hafa verið bökuð í Grímsbæ síðan 1990 en bakaríið verið í eigu sömu fjölskyldu síðan 1972.

Rétt fyrir bolludaginn á því ári voru fyrstu brauðin, kökurnar og rjómabollurnar bökuð í nýju bakaríi í nýbyggðri verslunarmiðstöð, Grímsbæ við Bústaðaveg.

Það var mikið að gera frá fyrsta degi hjá Guðfinni Sigfússyni bakarameistara (1918-1997) og hans fólki. Fossvogshverfið var í örum vexti og langt í næsta bakarí. Þá eins og nú var vandað til framleiðslunnar og enn muna margir sem ólust upp í hverfinu á þessum upphafsárum eftir bestu normalbrauðunum í bænum (að þeirra áliti), bestu snúðunum og langbeztu kókoskúlunum.

Eiginkona Guðfinns, Ingibjörg Guðmundsdóttir (1926-2006) var framkvæmdastjóri bakarísins. Þrír synir þeirra hjóna luku einnig námi í bakaraiðn og tveir þeirra, Guðmundur og Sigfús starfa enn við fagið og reka nú bakaríið.