Ferðafélag barnanna á Suðurlandi

Ferðafélag barnanna á Suðurlandi Markmið ferðafélagsins er að hvetja börn og fjölskyldur til útivistar, upplifa okkar fallegu náttúru

Fjölskylduaðventuganga í Hellisskóg 🎅🤶Ferðafélag barnanna á Suðurlandi í samvinnu við Heilsueflandi samfélag ætlar að bj...
10/12/2021

Fjölskylduaðventuganga í Hellisskóg 🎅🤶

Ferðafélag barnanna á Suðurlandi í samvinnu við Heilsueflandi samfélag ætlar að bjóða uppá aðventugöngu í Hellisskóg laugardaginn 18.desember kl. 11:00.

Gangan hefst á bílaplaninu við aðalinngang og göngum við saman að hellinum þar sem Jólaglugginn verður opnaður. Við Stórahelli verður boðið upp á heitt kakó og hvetjum við fjölskyldur til að taka með sér smákökur í nesti til að gæða sér á með kakóinu.

Markmiðið með þessari fjölskylduaðventugöngu er að hreyfa sig saman úti í náttúrunni og skapa ljúfa samverustund með okkar nánustu.

Allir velkomnir!
Hlökkum til að sjá ykkur

Gleðilegt sumar kæru vinir ☀️ Með hækkandi sól verður vonandi hægt að skella í nokkrar göngur í sumar, hlakka til 😁
22/04/2021

Gleðilegt sumar kæru vinir ☀️ Með hækkandi sól verður vonandi hægt að skella í nokkrar göngur í sumar, hlakka til 😁

Gleðilegt sumar kæru vinir :)

Skora á ykkur að gefa gæðastund í sumargjöf í ár - njóta samveru með barninu ykkar úti í náttúrunni og skapa góðar minningar :) :)

Óvissuferð er málið - sund, fjöruferð, nesti, fjársjóðsleit eða hvað sem fær litla mola til að kætast og njóta þess að vera með þér.
Ef það endar á ...ferð og nesti með í för - þá verður fjör ;)

Njótið dagsins

Kæru jólasveinar 🎅🏻 Hvernig væri að skella hreyfimiðum með í skóinn? froskahopp, bjarnaganga, englar ofl sniðugt, skógar...
11/12/2020

Kæru jólasveinar 🎅🏻 Hvernig væri að skella hreyfimiðum með í skóinn? froskahopp, bjarnaganga, englar ofl sniðugt, skógarferðir, göngutúrar eða bjóða í létta fjallgöngu?

Kæri Stekkjastaur ;)

Vertu velkominn til byggða - ég veit um litla mola sem eru spennt að sjá hvað þú færir þeim. Hvet þig til að vera skynsaman og velja vel gjafir. Velja gjafir sem hvetja til hreyfingar, hafa jákvæð áhrif á heilsu barna eða fjölgi gæðastundum fjölskyldunnar;)

Stekkjastaur - svo það sé á hreinu þá eru öll börn góð. Börn geta líka átt misjafna daga eins og við fullorðna fólkið. Stundum er það jafnvel okkur sjálfum að kenna ef dagurinn þeirra verður þeim erfiður ;)
Mæli ekki með kartöflu í skóinn Stekkjastaur - aldrei og þú mátt gjarnan senda bræðrum þínum sms með þeim skilaboðum.

Hlakka til að frétta af ferðum þínum í nótt;)

Áfram við öll ;)

Næsta áskorun! Reynum að gleðjast yfir henni í staðinn fyrir að svekkja okkur á ástandinu. Við getum þetta! Lágmark kluk...
06/10/2020

Næsta áskorun! Reynum að gleðjast yfir henni í staðinn fyrir að svekkja okkur á ástandinu. Við getum þetta! Lágmark klukkutími á dag í hreyfingu er gott markmið í þessum faraldri :)

Ef það hefur einhverntíman skipt máli að setja heilsuna okkar í forgang er það á þessum fordæmalausu tímum.
Verum góðar fyrirmyndir fyrir börnin okkar og setjum okkur líkamleg og andleg markmið saman :)

Tækifærin eru allt í kringum okkur og langar mig að nefna afþreyingu sem hægt er að stunda úti í náttúrunni í ferksu lofti og skapa dýrmætar minningar saman :) (Margt af þessu er hægt að gera í sóttkví, en passa að fylgja öllum reglum)

-Hellisskógur í kanínuleit, kasta steinum í Ölfusá og kíkja í hellirinn
-Þrastaskógur að finna Mikka ref? Týna laufblöð
-Ganga upp á Silfurbergið
-Ganga upp Kögunarhól
-Íþróttavöllurinn býður upp á allskonar möguleika, hlaupabraut, taka með bolta og sparka í mark ofl.
-hlaupa upp og niður stórahól
-Hamarinn í Hveragerði er mjög fallegur og skemmtilegur að ganga
-Varmá í Hveragerði er falleg gönguleið
-fara í sund (Selfoss, Borg, Stokkseyri ofl)
-fjöruferð
-fuglaskoðun
-Kerið í Grímsnesi
-safna steinum og mála á þá heima
-út að hjóla
-týna rusl :)
-gera æfingar úti (englahopp, froskahopp, bjarnagangur ofl)
-Notum hugmyndaflugið, spyrjum börnin ofl :)

Oft þarf ekki mikið til að breyta til og gleðja börnin, nesti er oft stór partur af upplifuninni og um að gera að hafa það meðferðis :)

Hvet ykkur til að nýta útiveruna á meðan veðrið er gott og að sjálfsögðu fylgja öllum reglum þegar kemur að sóttvörnum og sóttkvíum!

Gangi ykkur vel og áfram við :)

Takk fyrir skemmtilega göngu á Vörðufellið í síðustu viku snillingarnir ykkar 😁
05/08/2020

Takk fyrir skemmtilega göngu á Vörðufellið í síðustu viku snillingarnir ykkar 😁

Flott skrif hjá Sabínu ☺️
05/08/2020

Flott skrif hjá Sabínu ☺️

Til umhugsunar ;)

Ert þú foreldri nýnema í grunnskóla í haust ? Ertu stressuð/aður fyrir sundkennslunni - ég veit sem fyrrverandi sundkennari að foreldrar nýnemanna eru það ;)

Í grunnskólum eru flottir fagmenn sem koma til með að kenna barninu þínu sundtökin næstu árin og það er allt í lagi ef barnið er ekki orðið synt;)

Það best sem þú getur gert er að undirbúa barnið þitt undir það að vera sjálfstætt í sundklefanum í haust ;) smá hint af fenginn reynslu;)

- raða skónum - betra að finna þá eftir sund.
- snúa fötunum rétt - betra að klæða sig eftir sund.
- setja handklæðið á góðan stað og muna góða staðinn - velja vel handlæðið - hvítt er erfitt að muna þegar maður er 6.ára;)
- ná sér í sápu og þvo sér.
- klæða sig í sundfötin (sundbol - sundskýlu ...börn læra betur í slíkum viðeigandi fatnaði en ekki bandabikini og stuttbuxur)

Hrósið - hvetjið og brosið - því sund er frábær og skemmtileg hreyfing og upplifunin á að vera jákvæð :)

Njótið dagins

Takk fyrir frábæra göngu í dag 😁 þið eruð nú meiri snillingarnir! Hlakka til að ganga með ykkur aftur sem fyrst 🥳
08/07/2020

Takk fyrir frábæra göngu í dag 😁 þið eruð nú meiri snillingarnir! Hlakka til að ganga með ykkur aftur sem fyrst 🥳

Jæja er ekki kominn tími á göngu? Planið fyrir sumarið fór aðeins úrskeiðis vegna covid, en eru ekki allir til í að sigr...
28/06/2020

Jæja er ekki kominn tími á göngu?

Planið fyrir sumarið fór aðeins úrskeiðis vegna covid, en eru ekki allir til í að sigra 3-4 tinda saman í sumar? :)

Planið er að fara á Miðfell sem er fjall Hrunamanna, 6/7 eða 8 júlí (fer eftir veðri). Ótrúlega skemmtilegt og fallegt fjall og auðvelt göngu.
Endilega takið þessa daga frá, eflaust margir á flakki en þeir sem eru heima eru velkomnir með. Allt saman ókeipis, allir velkomnir, bara mæta klædd eftir veðri, með uppáhaldsnesti og góða skapið ☀️ 😁

Ég set inn viðburð þegar nær dregur 👏

Address

Mýrarland 13
Selfoss
800

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ferðafélag barnanna á Suðurlandi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Ferðafélag barnanna á Suðurlandi:

Share