08/10/2026
Kæru íbúar Víðigrundar og aðrir íbúar á Sauðárkróki. Nú er búið að malbika götuna og opna hana fyrir umferð, en ennþá stendur yfir vinna í götunni og biðjum við því um samvinnu ykkar áfram. Það má ekki leggja bílum í götunni og passa þarf áfram upp á ungviðið því ennþá eru stór tæki á ferðinni í götunni. Það á eftir að leggja gangstéttar.
Við þökkum enn og aftur fyrir hvað okkur hefur verið sýnd mikil tillitssemi og skilningur af íbúum á meðan framkvæmdir hafa staðið yfir.