Skógræktarfélag Reykjavíkur stendur fyrir fjölbreyttum viðburðum á aðventunni. Notaleg jólastemning, skógrækt og skógarmenning eru í forgrunni. Í ár verður Jólamarkaður í Heiðmörk, Jólaskógur á Hólmsheiði og jólatrjáasala á Lækjartorgi. JÓLAMARKAÐURINN Í HEIÐMÖRK
Jólamarkaðurinn við Elliðavatnsbæ í Heiðmörk er haldinn allar aðventuhelgar af Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Undanfarin ár hefur verið m
ikil og ljúf jólastemming og ánægjulegt að sjá að heimsókn á markaðinn hefur fest sig í sessi sem aðventuhefð hjá mörgum. Með Jólamarkaðnum vill félagið stuðla að ævintýralegri upplifun í vetrarparadísinni Heiðmörk þar sem fólk getur notið útiveru í skóginum, valið jólatré og einstakar gjafir á handverksmarkaðnum, og fengið sér kökur og heitt kakó. Félagið selur að sjálfsögðu aðeins íslensk jólatré. Fyrir hvert jólatré sem selst eru 50 gróðursett. Á handverksmarkaðnum er sérstök áhersla lögð á einstakt handverk og innlend matvæli og snyrtivörur. Barnastund verður í Rjóðrinu, nærri Elliðavatnsbænum, á hverjum opnunardegi markaðarins, klukkan 14. Þar lesa höfundar barnabóka úr verkum sínum. Undanfarin ár hefur oft myndast ævintýraleg skógarstemmning í Rjóðrinu, við varðeld í skjóli trjánna. Dagskrána má nálgast hér. Veitingasala er úti í jólakofa eins og síðustu tvö ár. Gestir geta valið um að sitja úti, á nýjum bekkjum frá Fangaverki, eða tylla sér inn í kjallara Elliðavatnsbæjarins. Gestum er bent á að klæða sig vel og njóta útivistarsvæðisins í Heiðmörk þegar þeir heimsækja Jólamarkaðinn. Út frá Elliðavatnsbænum er fjöldinn allur af gönguleiðum sem sjá má á korti hér. Megnið af jólatrjánum sem Skógræktarfélagið selur, koma úr Heiðmörk. Öll trén á markaðnum eru íslensk og eru því mun vistvænni en innflutt tré. Kolefnisspor þeirra er margfalt minna en influttra trjáa og þau eru ræktuð án skordýraeiturs. Fyrir hvert selt tré eru 50 gróðursett. Auk jólatrjánna er boðið upp á hin vinsælu tröpputré, greinabúnt og eldivið. Skógræktarfélagið fagnar fjölbreytileikanum og hefur um árabil boðið upp á Einstök jólatré. Þetta eru tré með mikla sérstöðu og eru í öllum stærðum, gerðum, formum og tegundum. Það er alltaf mikil stemmning að finna einstöku trén fyrir markaðinn og spennandi að sjá hvaða gersemar hafa fundist í skóginum. Margir fastakúnnar koma sérstaklega til að kaupa einstöku tréin og skemmta sér við að velja, oft á tíðum mjög skúlptúrísk tré. Jólamarkaðstré
Á hverju ári býður Skógræktarfélagið myndlistarmanni eða hönnuði að skreyta jólamarkaðstréð. Listamaðurinn Unndór Egill Jónsson skreytið jólamarkaðstréð í ár með skrauti sem unnið er úr birki sem grisja þurfti í Heiðmörk. Handverksmarkaður
Á handverksmarkaðnum er hægt að finna einstakar jólagjafir unnar af handverksfólki, bændum í matvælavinnslu og listamönnum. Mikið af vörunum eru ekki aðgengilegar í verslunum svo hér gefst einstakt tækifæri til að versla bæði spennandi matvörur og jólagjafir á einum stað. Sérstök áhersla er lögð á vandaðar handunnar vörur úr náttúrulegum efnum, listhanverk úr viði svo og innlend matvæli og snyrtivörur. Handverksmarkaðurinn er staðsettur í fremmri og neðri salnum í Elliðavatnsbænum auk þess sem sölukofar eru á torginu við bæinn. Eldsmiður verður að störfum úti við og fleira spennandi að gerast. Jólamarkaðurinn verður í Heiðmörk allar aðventuhelgarnar, frá klukkan 12:00 til 17:00.
26. – 27. desember
10. – 11. desember
17. – 18. desember
JÓLASKÓGURINN Á HÓLMSHEIÐI
Í Jólaskóginum á Hólmsheiði er hægt að höggva eigið jólatré. Þá verða jólasveinar á ferli í skóginum. Hægt er að fá lánaðar sagir á staðnum en við hvetjum gesti til að taka með sér sínar eigin sagir. Leiðarlýsingu má finna í færslum hér a síðunni og á heidmork.is. Opið verður eftirtaldar helgar, frá 11:00 til 16:00.
3. – 4. desember
JÓLATRJÁASALA LÆKJARTORGI
Skógræktarfélagið, í samstarfi við Reykjavíkurborg, mun bjóða upp á jólatrjáasölu á Lækjartorgi, frá 17. til 22. desember. Notaleg stemmning verður í gróðurhúsinu sem nú er staðsett á Lækjartorgi. Boðið verður upp á jólatré, tröpputré og greinabúnt. Opnunartímar Lækjartorgi:
17. des lau kl. 14 – 18
18. des sun kl. 14 – 18
19. – 22. des mán – fim kl. 16 – 20