Lífland - Kornax hveiti

Lífland - Kornax hveiti Kornax - íslenskt úrvals hveiti

13/01/2026

Hefurðu smakkað kanilsnúðakökuna frá Kornax? Samþykkt af ömmum um allt land.

Starfsfólk Kornax óskar viðskiptavinum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
24/12/2025

Starfsfólk Kornax óskar viðskiptavinum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Vinningshafar í smákökusamkeppni Kornax og Góu kíktu til okkar til að sækja vinningana. Í fyrsta sæti voru Jón Hjörtur H...
26/11/2025

Vinningshafar í smákökusamkeppni Kornax og Góu kíktu til okkar til að sækja vinningana. Í fyrsta sæti voru Jón Hjörtur Hjartarson og dóttir hans Eygló Ósk með Piparkökur í sparifötum. Þess má geta að Jón Hjörtur tók þátt í keppninni í fyrra þar sem hann lenti í 2. sæti. Þau hlutu í vinning Kitchen Aid hrærivél frá Raflandi, 50 þúsund króna gjafabréf frá Bónus, gistingu á Hótel Örk, út að borða á Apótekinu, gjafakörfu frá Bio Bú, gjafakörfu frá Góu, hamingjuegg frá Nesbú og hveiti og kökublöndur frá Kornax.
Í öðru sæti var Marína Björk Halldórsdóttir með Hátíðar-Maltkökur.
Í þriðja sæti var svo Hrefna Aradóttir sem mætti með dóttur sinni en þær gerðu kökurnar saman sem bera nafnið Jólakossar.
Við óskum verðlaunahöfum Smákökusamkeppni Kornax innilega til hamingju með árangurinn og einnig viljum við þakka öllum þeim fjölmörgu sem tóku þátt í keppninni.
Uppskriftirnar af verðlaunasmákökunum þremur má finna á vef Líflands - Kornax.
Gleðilegan bakstur!

https://www.lifland.is/is/kornax/smakokusamkeppni-kornax/vinningsuppskriftir-2025

Nú hefur dómnefndin í Smákökusamkeppni Líflands og Góu hafið störf en búast má við að hennar bíði erfitt val því hátt í ...
20/11/2025

Nú hefur dómnefndin í Smákökusamkeppni Líflands og Góu hafið störf en búast má við að hennar bíði erfitt val því hátt í 200 kökusortir bárust í keppnina. Í fyrramálið um kl. 9 verður svo sigurvegarinn tilkynntur í Bítinu á Bylgjunni.

12/11/2025

Kryddkakan frá Kornax er fullkomin fyrir ömmur sem vilja smá krydd í tilveruna.
Fæst í öllum helstu matvöruverslunum.

Þá er komið að því, hin árlega smákökusamkeppni Kornax er farin af stað. Líkt og áður verða glæsileg verðlaun veitt fyri...
24/10/2025

Þá er komið að því, hin árlega smákökusamkeppni Kornax er farin af stað. Líkt og áður verða glæsileg verðlaun veitt fyrir þrjú efstu sætin og að auki fá allir sem senda inn smákökur í keppnina glaðning frá Kornax og Góu. Skilafrestur er til 19. nóvember. Við hvetjum alla til að taka þátt!

Allar nánari upplýsingar hér:
https://www.lifland.is/is/kornax/smakokusamkeppni-kornax

Hinni árlegu Nemakeppni Kornax 2025 lauk í gær með glæsibrag!13 nemar öttu kappi í forkeppni þann 9. október og 6 þeirra...
17/10/2025

Hinni árlegu Nemakeppni Kornax 2025 lauk í gær með glæsibrag!
13 nemar öttu kappi í forkeppni þann 9. október og 6 þeirra kepptu til úrslita 15.–16. október. Verkefnin voru fjölbreytt: matbrauð, vínarbrauð og glæsileg sýningarstykki.

🏆 Úrslit:
1. sæti – Evgeniia Vaganova (Gæðabakstur)
2. sæti – Anna Kolbrún Stefánsdóttir (Gulla Arnar)
3. sæti – Funi Hrafn Eliasen (Passion)

🎨 Flottasta skrautstykkið: Evgeniia Vaganova
👏 Besti aðstoðarmaðurinn: Margrét Gunnarsdóttir Kvaran (Gulla Arnar)
Kornax er stolt af aðkomu sinni að þessu verkefni og hefur verið styrktaraðili þess í 27 ár. Við óskum öllum keppendum og aðstoðarfólki innilega til hamingju! 💐

Nú er hafin hin árlega úrslitakeppni í Nemakeppni Kornax í Hótel og Matvælaskólanum, bakaradeild MK. Þar keppa 11 ungir ...
15/10/2025

Nú er hafin hin árlega úrslitakeppni í Nemakeppni Kornax í Hótel og Matvælaskólanum, bakaradeild MK. Þar keppa 11 ungir og upprennandi bakaranemar sín á milli.

Keppnin er dýrmæt reynsla fyrir alla þátttakendur – hún krefst skipulagningar, undirbúnings og fagmennsku á háu stigi og veitir þátttakendum góða innsýn í það sem bíður þeirra á sveinsprófi síðar meir.

Meðfylgjandi eru myndir af nokkrum afurðum úr forkeppninni sem fram fór í síðustu viku.

Úrslitakeppninni lýkur svo á morgun 16. október og úrslitin verða kynnt síðar um daginn kl. 16:00 í Sunnusal í Menntaskólanum í Kópavogi.

Við óskum keppendum góðs gengis og hlökkum til að sjá afraksturinn.

Hér er hægt að fylgjast með beinu streymi frá keppninni
https://www.twitch.tv/bakaradeildmk

Address

Bruarvogur 3
Reykjavík
104

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

540 1100

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lífland - Kornax hveiti posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Lífland - Kornax hveiti:

Share