18/02/2026
Gæðabakstur-Ömmubakstur hefur í samstarfi við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur tekið ákvörðun um að innkalla Kristjánsbakarís brúna rúllutertu vegna aðskotahlutar í afmarkaðri lotu. Um er að ræða innköllun í varúðarsjónarmiði með tilliti til neytendaverndar. Innköllunin á við um lotu L26.33. Vörunum er dreift um land allt, meðal annars í verslunum Krónunnar, Bónus, Nettó, Hagkaup, Prís, Fjarðarkaup, Kjörbúð og Krambúð. Búið er að fjarlægja lotuna úr öllum verslunum.
Gæðabakstur-Ömmubakstur hvetur alla þá sem hafa þessa vöru undir höndum að neyta hennar ekki heldur skila henni í næstu verslun gegn endurgreiðslu vörunnar eða til Gæðabaksturs að Lynghálsi 7, 110 Reykjavík. Ef upp koma spurningar vinsamlegast hafið samband við [email protected] eða í síma 545-7000.