Skátafélagið Strókur

Skátafélagið Strókur Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Skátafélagið Strókur, Breiðamörk 22, Hveragerði.

Fálkaskátasveitin okkar labbaði frá Hveragerði til Reykjavíkur um helgina, gistu í tjöldum í tvær nætur á leiðinni. Fore...
01/06/2026

Fálkaskátasveitin okkar labbaði frá Hveragerði til Reykjavíkur um helgina, gistu í tjöldum í tvær nætur á leiðinni. Foreldrarnir trússuðu, gengu með og hittu öfluga ferðalanga með kakó og kleinur.
Frábær helgi og þvílíkar ofurhetjur. Geggjaðir foringjar og er gott foreldrasamstarf er lykillinn að allt gangi sem best 🥰
Til hamingju með þetta kæru fálkaskátar 🥰

Kæru frambjóðendur.Skátastarf hefur verið starfrækt í Hveragerði síðan 1953 og átt stóran þátt í uppeldi óteljandi ungme...
30/04/2026

Kæru frambjóðendur.

Skátastarf hefur verið starfrækt í Hveragerði síðan 1953 og átt stóran þátt í uppeldi óteljandi ungmenna. Skátafélagið stuðlar að öflugu forvarnar- og frístundastarfi með því að styðja börn og ungmenni til sjálfstæðis, umhyggjusemi, heilsusamlegs lífernis, að bera virðingu fyrir náunganum. Markmiðið er fyrst og fremst að gera þau bæði sjálfstæða og sterka einstaklinga. Í dag stunda 70 börn skátastarf hjá Stróki.

Skátastarf býður öll velkomin, óháð uppruna, kyni og kynhneigð. Þar er lögð rík áhersla á að öll fái þann stuðning og verkefni sem hentar þeim. Oft leita börn sem verða utangátta í íþróttum í skátastarf vegna þeirrar sérstöðu sem skátastarf hefur til að efla einstaklinginn.

Börn eru ekki að hugsa að markmið skátastarfsins sé að verða sjálfstæður og sterkur einstaklingur, þau eru fyrst og fremst að horfa á að það sé gaman og fái að vera með félögum sínum og vinum. Við foringjarnir og þau sem koma að starfinu vitum að hvert og eitt verkefni sem lagt er fyrir þau færir þau nær því að verða öflugir leiðtogar og kraftmiklir einstaklingar.

Til þess að hægt sé að halda úti sterku starfi þarf margt að ganga upp. Það þarf til að mynda gott húsnæði og gott umhverfi, það þarf góða foringja og gott foreldrasamstarf. Það þarf sköpunarkraft, frumkvæði og jákvæðni. Við hjá skátafélaginu Stróki erum heppin að hafa haft þetta allt.

Við erum í góðu samstarfi við bæjaryfirvöld og höfum gert þjónustusamninga við Hveragerðisbæ, þar fáum við styrk til að halda úti starfinu og við sinnum ákveðnum verkefnum í staðinn. Til dæmis höfum við séð um skrúðgöngu á 17. júní, sumarhátíð á sumardaginn fyrsta, kakó þegar kveikt er á jólatré bæjarins og fleira.
En, betur má ef duga skal.

Nú keppast frambjóðendur við að lofa ýmsu í aðdraganda kosninga. Meðal annars að styðja við íþróttastarfið og sett hafa verið fram plön um áframhaldandi uppbyggingu íþróttamannvirkja. Núverandi uppbygging hefur ekki komið okkur vel og búið að taka gífurlegt svæði af lóð okkar við Breiðumörk til að byggja íþróttahús, þar sem við höfum nú þegar tapað eldstæðum okkar og fánastöng. Við stöndum ekki í vegi fyrir uppbyggingu íþróttamannvirkis með því að mótmæla en auðvitað söknum við þess að geta sinnt ákveðnum verkefnum við skátaheimilið eins og að kenna krökkunum að kveikja eld og fleira. Við getum, og höfum, nýtt eldstæðið í útistofunni Lundi undir Hamrinum en þar er einungis eitt eldstæði sem setur okkur skorður varðandi fjölda þeirra sem geta spreytt sig í einu og eins er engin salernisaðstaða á því svæði.

Ég hvet frambjóðendur til að muna eftir okkur og öðrum minni félögum í umræðunni um áform komandi kjörtímabils, foreldrar þessara barna eru ykkar kjósendur. Hvernig ætlið þið kæru frambjóðendur að styðja við forvarna- og frístundastarf í Hveragerði? Ég hvet ykkur til að muna eftir öllum sem starfa með börnum og muna að öll eru jafn mikilvægur hlekkur í aðkomu að uppeldi barnanna okkar.

Kveðja
Kristjana Sveinsdóttir
Félagsforingi Skátafélagsins Stróks
Foreldri og sjálfboðaliði

Ljósmynd tekin á sumardaginn fyrsta

Skátafélagið Strókur óskar ykkur öllum gleðilegs sumars 🎉🥰
23/04/2026

Skátafélagið Strókur óskar ykkur öllum gleðilegs sumars 🎉🥰

Í dag funduðu saman öll sem eru að fara saman á Landsmót skáta og nokkur önnur 🎉Farið í hópeflisleiki, krísustjórnun, ke...
20/04/2026

Í dag funduðu saman öll sem eru að fara saman á Landsmót skáta og nokkur önnur 🎉
Farið í hópeflisleiki, krísustjórnun, kexúthlutun, sungið og mikið gaman!
Þvílíkir snillingar öll sem eitt og framtíðin er björt!

30/03/2026

Skátafélagið og landsmótsfarar þakka fyrir geggjaða mætingu og stuðning á bingóinu í kvöld!!!! Takk takk takk!

Vinningarnir aldrei verið glæsilegri! Sjáumst í kvöld. Pylsur, gos og safar ofl í boði í sjoppunni 🎉
30/03/2026

Vinningarnir aldrei verið glæsilegri! Sjáumst í kvöld.
Pylsur, gos og safar ofl í boði í sjoppunni 🎉

2. bekkur byrjar á þriðjudaginn! Hlökkum til að sjá ykkur
01/02/2026

2. bekkur byrjar á þriðjudaginn! Hlökkum til að sjá ykkur

Aðalfundur 🥳
28/01/2026

Aðalfundur 🥳

Address

Breiðamörk 22
Hveragerði

Telephone

8656757

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Skátafélagið Strókur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Skátafélagið Strókur:

Share