Ás, dvalar- og hjúkrunarheimili

Ás, dvalar- og hjúkrunarheimili Ás hjúkrunarheimili

Þessi hópur úr Bæjarási skellti sér í gönguferð meðfram Varmá. Eiríkur Gylfi sem er í dagdvöl var leiðsögumaður enda fæd...
31/08/2026

Þessi hópur úr Bæjarási skellti sér í gönguferð meðfram Varmá. Eiríkur Gylfi sem er í dagdvöl var leiðsögumaður enda fæddur og uppalinn í Hveragerði.
Dásamleg ganga í fínu síðsumarsveðri. 🥰

Það er alltaf gott að fá sér ferskt loft. Heimilisfólk í Ási skellti sér nýverið í göngu kringum kirkjuna. Þar var verið...
26/08/2026

Það er alltaf gott að fá sér ferskt loft. Heimilisfólk í Ási skellti sér nýverið í göngu kringum kirkjuna.

Þar var verið að snyrta gróðurinn og við rákum augun í geitungabú sem var verið að fjarlægja, sem betur fer.

Það voru ekki amalegar móttökurnar sem gestir og gangandi fengu þegar þeir komu í heimsókn í Ás á Blómstrandi dögum.
25/08/2026

Það voru ekki amalegar móttökurnar sem gestir og gangandi fengu þegar þeir komu í heimsókn í Ás á Blómstrandi dögum.

Kærleikur, lífið og tilveran var umfjöllunarefnið þegar hún Dóra Sólrún Kristinsdóttir djákni kom og var með samverustun...
25/08/2026

Kærleikur, lífið og tilveran var umfjöllunarefnið þegar hún Dóra Sólrún Kristinsdóttir djákni kom og var með samverustund hér í Ási. Notaleg stund. 🥰

Þó flestir dagar í Bæjarási séu afskaplega notalegir þá eru sumir dagar aðeins betri en venjulega. Í vikunni kom hann Eg...
30/07/2026

Þó flestir dagar í Bæjarási séu afskaplega notalegir þá eru sumir dagar aðeins betri en venjulega.

Í vikunni kom hann Egill Darri í heimsókn með hunda sem fjölskyldan hans er að passa og það vakti kátínu.🐩

Að auki var ákveðið að fara í svokallað aulabingó sem allir elska.
Svo góður dagur 😍

Stundum er gott að viðra sig aðeins og það er einmitt það sem  Björk, Snorri og Friðberg gerðu á dögunum. Þau eru í dagd...
28/07/2026

Stundum er gott að viðra sig aðeins og það er einmitt það sem Björk, Snorri og Friðberg gerðu á dögunum. Þau eru í dagdvöl í Bæjarási.

Gengið var um Lystigarðinn og dáðst að fallegum gróðrinum. Þar var á víðavangi fótbolti og ákveðið að sparka á milli og hvíla sig svo á þessum fallega bekk sem nýkominn er í garðinn. Starfmaður Bæjaráss tók þessar skemmtilegu myndir.🥰

Fjölmargir lögðu leið sína  á opið hús á afmælisdegi Áss í gær þegar gefinn var kostur á að  skoða nýja hjúkrunarheimili...
27/07/2026

Fjölmargir lögðu leið sína á opið hús á afmælisdegi Áss í gær þegar gefinn var kostur á að skoða nýja hjúkrunarheimilið sem er að rísa.

Gestum var boðið upp á kaffi og kleinur og fengu leiðsögn um þetta glæsilega heimili sem stefnan er að opna í febrúar á næsta ári.

Þegar tími gefst til er notalegt að nostra aðeins við heimilisfólkið.🥰 Hún Tanja, sem vinnur við umönnun í Bæjarási, ákv...
24/07/2026

Þegar tími gefst til er notalegt að nostra aðeins við heimilisfólkið.

🥰 Hún Tanja, sem vinnur við umönnun í Bæjarási, ákvað að bjóða heimiliskonunni Nönnu upp á förðun þegar hún átti lausa stund. Nanna var ekki lengi að þiggja slíka dekurstund.😍

22/07/2026
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir heimsótti Ás í gær ásamt eiginmanni sínum, Birni Skúlasyni. Tilefnið var 80 ára afmæl...
30/04/2026

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir heimsótti Ás í gær ásamt eiginmanni sínum, Birni Skúlasyni. Tilefnið var 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar. 🇮🇸

Stjórnarformaður Grundarheimilanna, Gísli Páll Pálsson ásamt forstjóra Karli Óttari Einarssyni, tóku á móti forsetahjónunum og Birna Sif Atladóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar í Ási flutti ávarp.

Forsetinn lýsti yfir ánægju með heimsóknina og sagði það bera vott um gott samfélag þar sem hlúð væri að börnum og öldruðum.

Heimilisfólkið var spennt fyrir komu forsetahjónanna sem gáfu sér góðan tíma til að heilsa upp á bæði þá sem búa í Ási og eru í dagdvöl. Að lokum var afmælissöngurinn tekinn fyrir afmælisbörn dagsins.

Address

Hverahlíð 20
Hveragerði
810

Telephone

480-2000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ás, dvalar- og hjúkrunarheimili posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Ás, dvalar- og hjúkrunarheimili:

Shortcuts

Share