15/10/2026
Ein af spurningum sem við höfum fengið mjög reglulega upp á síðkastið er: „Hvenær koma hrossabjúgun aftur?“
Núna gleður okkur að tilkynna að svarið er að þau eru komin! Vonandi gerir eftirvæntingin þau bara enn betri en góðu hrossabjúgun frá Langholtskoti eru aftur komin í búðina til okkar!
Og miðað við hvað margir hafa beðið eftir því… þá er kannski ekki vitlaust að taka nokkra pakka í einu. Bara svona til öryggis ;)
Kíkið endilega við áður en þau klárast aftur! Opið alla daga frá 9:00–17:30.