Kaldársel

Kaldársel KFUM og KFUK starfrækja sumarbúðir í Kaldárseli.

BREYTTUR BROTTFARARSTAÐUR FRÁ HAFNARFIRÐI.Við þurfum að breyta því hvar börnin í Hafnarfirði eru sótt vegna þess að það ...
15/06/2026

BREYTTUR BROTTFARARSTAÐUR FRÁ HAFNARFIRÐI.

Við þurfum að breyta því hvar börnin í Hafnarfirði eru sótt vegna þess að það eru framkvæmdir á bílaplaninu við Lækjarskóla. Við munum í staðin notast við bílaplanið við íþróttahús Setbergsskóla í sumar.

Stubbaflokkur -FöstudagurÍ hádegismat í gær var skyr ásamt brauði sem allir borðuðu vel af. Því næst var farið í ævintýr...
12/06/2026

Stubbaflokkur -Föstudagur

Í hádegismat í gær var skyr ásamt brauði sem allir borðuðu vel af. Því næst var farið í ævintýraleikinn mikla sem vakti mikla gleði bæði meðal krakkanna og foringjanna. Í kaffi var brauð og kanilsnúðar og svo fór allur hópurinn í brennó. Næst tók við frjáls tími þar sem margir fóru í feluleik, léku sér í íþróttasalnum og gerðu sig fín fyrir veislukvöldið. Í veislumat var pizza og svo var farið í stoppdans og aðra hópleiki. Á veislukvöldvökunni var mikið sungið, foringjar sýndu hin víðfrægu leikrit og allir fengu ís. Eftir kvöldvöku var komið að háttatíma, en það var allt í plati því þá var komið að náttfatabíói með poppi og kósíheitum. Myndin sem horft var á var Að temja drekann sinn og öll fóru þau svo þreytt og glöð í háttinn eftir frábæran dag.

Í morgun var vakið kl 8:30 og farið beint í morgunmat. Á morgunstund var að sjálfsögðu sungið og krakkarnir fengu fræðslu um bænina. Þau heyrðu sögu um þakkarkörfuna og skrifuðu þakkir í sína eigin þakkarkörfu. Síðan var pakkað og leikið sér úti í bongó blíðunni. Í sólinni voru borðaðar pylsur, gerð vinaarmbönd og leikið sér í hrauninu. Síðasta ganga flokksins var upp á Sandfell sem var frábært í blíðunni.
Að lokum var komið að heimferð og krakkarnir fóru sælir heim eftir frábæran flokk.

Við forstöðukonurnar þökkum öllum fyrir flokkinn!
Karen og Svanhildur

Myndir https://www.flickr.com/gp/kfum-kfuk-island/niAUF9i7qz

11/06/2026

Í gær komu 13 hressir krakkar upp í Kaldársel þar sem foringjar tóku vel á móti þeim og sýndu þeim herbergin sín og staðinn. Í kaffinu var borðað brauð og berlínarbollur áður en haldið var í hellagöngu. Það var pollagallaveður sem kom ekki að sök þar sem það rigndi ekki inni í hellinum. Þá tók við frjáls tími þar sem íþróttasalurinn var vinsæll og margir æfðu atriði fyrir kvöldvökuna. Í kvöldmat var dýrindis hakk og spaghetti með hvítlauksbrauði. Á kvöldvökunni var sungið og krakkarnir voru með skemmtileg og fjölbreytt atriði. Hugleiðing kvöldsins var um náungakærleikann og mikilvægi þess að vera góð hvort við annað. Eftir ávexti og fjör í íþróttasalnum var komið að háttatíma. Flestum tókst vel að sofna eftir góða kvöldstund með sínum foringja.

Í morgun vöknuðu allir hressir og kátir rétt fyrir 8 og fengu sér morgunmat. Við tók morgunstund þar sem öll helstu lögin voru sungin og vel tekið undir. Krakkarnir fengu fræðslu um Biblíuna og Gullnu regluna og heyrðu að lokum eina dæmisögu. Í frjálsa tímanum lék veðrið við okkur og margir nýttu tímann í útivist og smíði. Framundan er skemmtilegur dagur með ævintýraleik, íþróttum og veislukvöldi og svo er heimför á morgun.

Með kveðju,
Karen og Svanhildur forstöðukonur

Myndir eru hér:

Sterkt teymi, góð stemning og mikill metnaður – starfsfólk er klárt í sumarið! ☀️ 🎉
07/06/2026

Sterkt teymi, góð stemning og mikill metnaður – starfsfólk er klárt í sumarið! ☀️ 🎉

Nú er sumarið að byrja og mikil tilhlökkun að taka á móti börnunum í Kaldársel.Enn eru laus pláss í tvo dvalarflokka og ...
04/06/2026

Nú er sumarið að byrja og mikil tilhlökkun að taka á móti börnunum í Kaldársel.
Enn eru laus pláss í tvo dvalarflokka og á tvö leikjanámskeið.
Ætlar þú að vera með?

Skráning á www.sumarfjor.is

02/06/2026

Það er meiriháttar gaman í dvalarflokkum í Kaldárseli 💛
Skráning á https://sumarfjor.is

KFUM og KFUK starfrækja sumarbúðir í Kaldárseli.

29/05/2026
Takk öll sem komuð á Vorhátíð Kaldársels þetta var dásamlegur dagur og gaman að fá ykkur í hús. ⭐️☀️Enn eru nokkur laus ...
15/05/2026

Takk öll sem komuð á Vorhátíð Kaldársels þetta var dásamlegur dagur og gaman að fá ykkur í hús. ⭐️☀️

Enn eru nokkur laus pláss í sumar, skráning á www.sumarfjor.is

Ógleymanlegt sumar framundan☀️Nú fer að styttast í sumarið og flokkarnir farnir að fyllast. Aðeins nokkur laus pláss eft...
22/04/2026

Ógleymanlegt sumar framundan☀️
Nú fer að styttast í sumarið og flokkarnir farnir að fyllast. Aðeins nokkur laus pláss eftir.
Skráningin í Kaldársel fer fram á sumarfjor.is
https://sumarfjor.is/Event.aspx?id=5

Hvað er Stubbaflokkur?Það er stuttur dvalaflokkur! 3 dagar fyrir 7-11 ára krakka. Er til betri leið til að byrja sumarið...
07/03/2026

Hvað er Stubbaflokkur?

Það er stuttur dvalaflokkur!
3 dagar fyrir 7-11 ára krakka.

Er til betri leið til að byrja sumarið en að bruna í Selið strax að lokinni skólasetningu?

Skráning á kaldarsel.is

Address

Kaldárselsvegi
Hafnarfjörður
221

Telephone

588-8899

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Kaldársel posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Kaldársel:

Shortcuts

Share