Vísir hf

Vísir hf Vísir er rótgróið, kröftugt og framsækið íslenskt sjávarútvegsfyrirtæki þar sem öll áhersla er lögð á ábyrgar veiðar, hátæknivinnslu og vörugæði.

Þann 22.október luku 47 starfsmenn Vísis Fiskvinnslunámskeiði sem haldið var á vegum Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesju...
23/10/2025

Þann 22.október luku 47 starfsmenn Vísis Fiskvinnslunámskeiði sem haldið var á vegum Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum. Námskeiðið er sérsniðið fyrir fiskvinnslufólk og kennt er eftir námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Námskeiðið var kennt í gegnum Learncove og tókst mjög vel.

Starfsmenn Vísis héldu upp á dag bleiku slaufunnar í kaffinu í dag. Boðið var upp á bollakökur frá Hérastubbi bakara. Ví...
22/10/2025

Starfsmenn Vísis héldu upp á dag bleiku slaufunnar í kaffinu í dag. Boðið var upp á bollakökur frá Hérastubbi bakara. Vísir færði konunum sparislaufuna til styrktar Krabbameinsfélags Íslands.
Það er alltaf gaman að sjá hversu margir starfsmenn mæta í bleiku á þessum degi til að vekja athygli og sýna samstöðu með öllum konum sem greinst hafa með krabbamein.

Hin árlega skipstjóra og sjómannna samkoma í tilefni af sjómannadeginum var haldin á Sjómannastofunni Vör í gær. Góð mæt...
31/05/2025

Hin árlega skipstjóra og sjómannna samkoma í tilefni af sjómannadeginum var haldin á Sjómannastofunni Vör í gær. Góð mæting af núverandi og fyrrum sjómönnum Vísis. Veittar voru viðurkenningar og stundarinnar notið í rólegheitunum.
Myndirnar tala sínu máli.

Björgunaræfingar um borð á Páli Jónssyni tókust vel ✔️
08/02/2025

Björgunaræfingar um borð á Páli Jónssyni tókust vel ✔️

Páll Jónsson GK landaði fullfermi af þorski, löngu og ýsu í Grindavík á sunnudag eftir góðan túr austur á Meðallandsbugt og Kötlugrunn. Skipstjórinn segir marga vera í mokveiði og fiskinn vænan. Hjá Vísi sé unnið á fullu í öllum húsum.

Við sendum starfsfólki okkar, fjölskyldum þeirra og öllum Grindvíkingum bestu óskir um gleðileg jól.
24/12/2024

Við sendum starfsfólki okkar, fjölskyldum þeirra og öllum Grindvíkingum bestu óskir um gleðileg jól.

Jóladeginum í Vísi var fagnað með góðum jólamat og jólapeysum. Einnig var tækifærið nýtt og þeim starfsmönnum sem hafa s...
23/12/2024

Jóladeginum í Vísi var fagnað með góðum jólamat og jólapeysum. Einnig var tækifærið nýtt og þeim starfsmönnum sem hafa starfað í fyrirtækinu í 20 ár þakkað fyrir og gefinn blómvöndur við tilefnið.

Guðrún María, Aníta Ósk og Óli hafa öll starfað í Vísi í 20 ár. Öll hafa þau starfað við góðan orðstír innan fyrirtækisins en skemmtilegt er að segja frá því að Óli hefur verið innan okkar raða frá því hann flutti til Íslands.

Það var einnig með miklum trega kvatt Gústa okkar sem hefur starfað í Vísi í 45 ár og var þetta síðasti dagurinn hans áður en hann flaug út í sólina til Tenerife. Palli í Vísi, tengdafaðir hans plataði Gústa yfir til sín fyrir 45 árum, þá 21 árs gamlan en fyrir það vann Gústi á loðnuskipi í Grindavík.

Við munum sakna Gústa en vitum nú að hann sleppir ekki takinu svo auðveldlega. Svo ekki láta ykkur bregða ef þið sjáið hann á rúntinum um hafnarsvæðið með vökult auga. Gústi til hamingju með starfslokin og gleðileg jól öllsömul.

Jólaball Vísis var haldið hátíðlegt um helgina, þriðja sunnudag í aðventu. Jólaballið er árlegur liður hjá okkur í Vísi ...
17/12/2024

Jólaball Vísis var haldið hátíðlegt um helgina, þriðja sunnudag í aðventu.
Jólaballið er árlegur liður hjá okkur í Vísi og ávallt verið haldið í salnum okkar í Vísi. Vegna aðstæðna í fyrra var jólaballið haldið í félagsheimili Fálks í Víðidal og því vorum við afar glöð að geta haldið jólaballið í salnum okkar heima í Grindavík á ný.
Vel var mætt og krakkarnir skemmtu sér vel. Guðbrandur Einarsson sem hefur verið okkur innan handar í mörg ár spilaði undir söng og dansi. Jólasveinarnir Stúfur og Þvörusleikir, sem mætti beint af næturvaktinni létu sig ekki vanta. Þeir dönsuðu með krökkunum og færðu þeim glaðning úr pokanum sínum. Við þökkum starfsmönnum og fjölskyldum fyrir góða samverustund.

10/11/2024
Ógnir, öryggi og áhættumat. Grein frá Pétri Hafsteini Pálssyni, framkvæmdastjóra Vísis í morgunblaðinu í dag.
30/10/2024

Ógnir, öryggi og áhættumat. Grein frá Pétri Hafsteini Pálssyni, framkvæmdastjóra Vísis í morgunblaðinu í dag.

Haldið var upp á dag bleiku slaufunnar í kaffinu í gær. Boðið var upp á bleikar kökur frá Hérastubbi, bakaríinu okkar gó...
24/10/2024

Haldið var upp á dag bleiku slaufunnar í kaffinu í gær. Boðið var upp á bleikar kökur frá Hérastubbi, bakaríinu okkar góða í Grindavík. Í byrjun kaffitímans var konunum gefið hálsmen bleiku slaufunnar til styrktar Krabbameinsfélags Íslands.

Það er alltaf gott og gaman að sjá hversu margir starfsmenn mæta í bleiku á þessum degi til að vekja athygli og sýna samstöðu með öllum konum sem greinst hafa með krabbamein.

Nýja vélin frá Kapp mætt í hús🤝
23/07/2024

Nýja vélin frá Kapp mætt í hús🤝

Okkar kæri útgerðarstjóri Kjartan Viðars
15/06/2024

Okkar kæri útgerðarstjóri Kjartan Viðars

„Alltaf gengið illa að beisla mig á skrifstofu“

Í samfélagsskýrslu Síldarvinnslunnar, sem kom út fyrr á þessu ári, voru birt stutt viðtöl við nokkra starfsmenn fyrirtækisins og dótturfélaga. Nokkur þessara viðtala munu birtast hér á heimasíðunni og hér er eitt þeirra.

Kjartan Viðarsson er fæddur og uppalinn í Grindavík og segist vera Grindvíkingur í húð og hár. Hann gegnir nú starfi útgerðarstjóra Vísis og hefur svo sannarlega nægum verkefnum að sinna. „Ég byrjaði á sjó hjá Vísi 16 ára gamall. Þá var ég á Hrungni á netum. Síðan var ég á fleiri Vísisbátum. Um tíma var ég á Sighvati á línu og á Mána á humri. Að því kom að ég byrjaði að starfa hjá Vélsmiðju Grindavíkur og þá vann ég mikið við viðhald Vísisbáta. Segja má að alla mína starfsævi hafi ég verið tengdur Vísi með einum eða öðrum hætti. Um 2000 tók ég síðan við starfi útgerðarstjóra fyrirtækisins og hef gegnt því síðan. Þegar ég tók við útgerðarstjórastarfinu átti Vísir 10 skip en núna gerir fyrirtækið út fimm skip auk þess sem Fjölnir liggur um þessar mundir og er ekki í rekstri. Vísir hefur þróast mikið og breyst á síðustu árum og ég tel allar þær breytingar vera jákvæðar. Vísir hefur eignast gömul skip sem þurfa töluvert viðhald með einni undantekningu; Páll Jónssson var smíðaður fyrir Vísi og kom nýr árið 2019. Sumir þessara gömlu báta hafa verið endursmíðaðir og má þar til dæmis nefna Sighvat og Fjölni. Það er í mínum verkahring að hugsa um allt sem að skipunum snýr eins og viðhald og veiðarfæri og það er alltaf meira en nóg að gera. Það breyttist margt þann 10. nóvember síðastliðinn þegar Grindavík var rýmd. Ég hef verið svolítið reittur síðan. Ég þeytist um á bílnum enda heimahöfnin ekki til staðar lengur. Ég hef skrifstofuaðstöðu í Reykjavík en ég er afskaplega lítið þar. Í sannleika sagt hefur alltaf gengið illa að beisla mig á skrifstofu. Ég er í miklum og góðum tengslum við skipstjórana og vélstjórana á bátunum og tek allslags ákvarðanir í samstarfi við þá. Eins á ég í afar góðu samstarfi við Pétur Hafstein framkvæmdastjóra. Útgerðin er með varahlutalager í Grindavík en hann er ekki stór. Við höfum ekki flutt lagerinn enda erum við alltaf á leiðinni heim. Útgerðarstjórastarfið er erilsamt en það er fjölbreytt og skemmtilegt og aldrei verkefnaskortur. Þegar Síldarvinnslan festi kaup á Vísi urðu sumir dálítið óvissir og kvíðnir en ég held að allur kvíði sé gjörsamlega horfinn. Vísir styrktist með kaupum Síldarvinnslunnar á fyrirtækinu og ég tel að í þeim hremmingum sem við Grindvíkingar erum að ganga í gegnum skipti miklu máli að eiga sterkt bakland,“ segir Kjartan.

Myndatexti: Kjartan Viðarsson

Address

Hafnargata 16
Grindavík
240

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 15:00

Telephone

+3544205700

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Vísir hf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share