04/09/2018
Við viljum þakka kærlega fyrir síðasta skólaár og allan þann stuðning sem GEY hefur fengið, sérstaklega þau sem komu að viðburðunum með okkur. Nú taka þær Aðalbjörg Egils, Bjarney Helga, Gyða Kolbrún, Lóa Gunnars og Sólveig Erla við formannsstöðunum.
Á skólaárinu 17/18 söfnuðust samtals 754.281kr.
Hér getið þið séð hvaða málefni voru styrkt og hvað safnaðist mikið á hverjum viðburði:
12. september seldum við ís í samstarfi við ísbúðina Valdís á kaffihúsakvöldi í tilefni af 40 ára afmæli Fjölbrautaskólans. Allur ágóðinn rann til UNICEF en það söfnuðust 42.305kr.
5. október seldum við kleinuhringi í boði Krispy Kreme Doughnuts. Allur ágóði sölunnar var gefinn minningarsjóði Lovísu Hrundar en það söfnuðust 38.800kr.
12. október vorum við með sjoppu á WestSide í boði Verslun Einars Ólafssonar, Myllunar og Krónunnar. Ágóðinn rann til Bleiku slaufunnar en það söfnuðust 25.350kr.
9. nóvember var Tæknimessa í FVA og fékk góðgerðarfélagið nokkra flotta nemendur með sér í lið í sjálfboðavinnu. Fyrir Tæknimessuna fékk góðgerðafélagið afhentar 100.000kr. auk 3696kr. fyrir flöskusöfnun, ágóðanum var skipt milli Kidda Jens og Dags Kára Kristinssonar.
21. nóvember var jólabíó á sal skólans. Við seldum smákökur og kakó til styrktar Mæðrastyrksnefnd Akraness og söfnuðust 26.202kr.
18. janúar var haldið Rave ball til styrktar BUGL og 80.000kr. söfnuðust.
19. og 20. febrúar var haldið bíókvöld GEY og Bíóhallarinnar og síðan var selt bakkelsi á söngvakeppni FVA daginn eftir. Ágóðinn rann til Mottumars en í heildina söfnuðust 158.634kr.
19.mars var haldið bingó til styrktar Neistanum en það söfnuðust 279.294kr. Bingóið var styrkt með fullt af glæsilegum vinningum og bakkelsi frá 17 sortum og Brauð og co.
Margt smátt gerir eitt stórt og ykkar framlag á viðburðunum skiptir miklu máli! Haldið áfram að mæta og styrkja frábær málefni. Takk fyrir okkur og ❤️
m.b.k
Eva, Hjördís og Hrafnhildur.