Þjóðlegt með kaffinu

Þjóðlegt með kaffinu Ýmislegt um þjóðlegt bakkelsi og kaffihúsið í Ögri við Ísafjarðardjúp.

Við erum mætt á Mannamót 2026 sem er kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni, haldið í Kórnum í Kópavogi.
15/01/2026

Við erum mætt á Mannamót 2026 sem er kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni, haldið í Kórnum í Kópavogi.

Það var sól og blíða í sveitinni þegar Landinn heimsótti okkur í sumar og forvitnaðist um kaffihúsalífið í gamla samkomu...
12/10/2025

Það var sól og blíða í sveitinni þegar Landinn heimsótti okkur í sumar og forvitnaðist um kaffihúsalífið í gamla samkomuhúsinu í Ögri.

SÍÐASTI OPNUNARDAGUR 17. ÁGÚST 2025Það líður að lokum hjá okkur á kaffihúsinu í Ögri og sunnudagurinn 17. ágúst verður s...
16/08/2025

SÍÐASTI OPNUNARDAGUR 17. ÁGÚST 2025
Það líður að lokum hjá okkur á kaffihúsinu í Ögri og sunnudagurinn 17. ágúst verður síðasti dagurinn sem kaffihúsið verður opið þetta sumarið. Fram að því bjóðum við að sjálfsögðu upp á þjóðlegt og gott bakkelsi og um að gera að kíkja við í kaffi áður en skellt verður í lás. Kærar þakkir þið öll sem heimsóttuð okkur í sumar og velkomin aftur næsta sumar!

The final week has arrived and Sunday 17th of August is the last opening day at Café Ögur this summer. We will open again in June 2026. Thank you all who visited us in Ögur this summer and welcome back next summer!

Baskneska hljómsveitin Kalekantoi verður með tónleika í Samkomuhúsinu í Ögri 14. ágúst kl 15:30. Það er fjölskylda sem m...
09/08/2025

Baskneska hljómsveitin Kalekantoi verður með tónleika í Samkomuhúsinu í Ögri 14. ágúst kl 15:30. Það er fjölskylda sem myndar hljómsveitina, faðir og þrjár dætur, og þau spila hefðbundna baskneska tónlist á fjölbreytt, hefðbundin basknesk hljóðfæri eins og Trikiti, Dultzaina, Alboka og fleiri.

Á tónleikunum mun Baskinn Imanol Mendi, sem hefur starfað í Djúpavík, kynna hin mismunandi hljóðfæri sem leikið verður á og kynna og segja frá baskneskri tónlist.

04/07/2025

HARMONIKUBALL Í ÖGRI 18. JÚLÍ 2025
Harmonikuball verður haldið í Samkomuhúsinu í Ögri föstudaginn 18. júlí kl. 20.30 - 22.30 í tilefni af aldarafmæli hússins. Landsþekktir tónlistarmenn leika fyrir dansi, þau Vigdís Jónsdóttir og Einar Friðgeir Björnsson harmonikuleikarar og Marinó Björnsson bassaleikari. Ungir og aldnir fá þarna kjörið tækifæri til að upplifa ball í anda þess tíma þegar Ögurhreppur var blómleg sveit með litríku mannlífi og öflugu menningar- og félagsstarfi.

Harmonikuballið er opið öllum og aðgangur ókeypis.

Það er upplifun að kíkja í kaffi í gamla samkomuhúsinu í Ögri.A special place you don´t want to miss along the route.
28/06/2025

Það er upplifun að kíkja í kaffi í gamla samkomuhúsinu í Ögri.
A special place you don´t want to miss along the route.

Í Ögri við Ísafjarðardjúp er rekið kaffihús í gamla samkomuhúsinu þar sem boðið er upp á þjóðlegt bakkelsi. Í Ögri er einnig boðið upp á kajak- og gönguferði...

HARMONIKUBALL Í ÖGRI 18. JÚLÍ 2025Harmonikuball verður haldið í Samkomuhúsinu í Ögri föstudaginn 18. júlí kl. 20.30 - 22...
25/06/2025

HARMONIKUBALL Í ÖGRI 18. JÚLÍ 2025
Harmonikuball verður haldið í Samkomuhúsinu í Ögri föstudaginn 18. júlí kl. 20.30 - 22.30 í tilefni af aldarafmæli hússins. Landsþekktir tónlistarmenn leika fyrir dansi, þau Vigdís Jónsdóttir og Einar Friðgeir Björnsson harmonikuleikarar og Marinó Björnsson bassaleikari. Ungir og aldnir fá þarna kjörið tækifæri til að upplifa ball í anda þess tíma þegar Ögurhreppur var blómleg sveit með litríku mannlífi og öflugu menningar- og félagsstarfi.

Harmonikuballið er opið öllum og aðgangur ókeypis.

OPNUM 20. JÚNÍ 2025!Þann 20. júní nk. munum við opna kaffihúsið í gamla samkomuhúsinu í Ögri við Ísafjarðardjúp. Að venj...
26/05/2025

OPNUM 20. JÚNÍ 2025!
Þann 20. júní nk. munum við opna kaffihúsið í gamla samkomuhúsinu í Ögri við Ísafjarðardjúp. Að venju verður boðið upp á fjölbreytt bakkelsi og súpu dagsins. Við verðum með opið alla daga vikunnar frá kl. 10 til 18.

Helgina 18. - 20. júlí verður Ögurhátíð með ýmsum uppákomum þar sem hæst ber hið víðfræga Ögurball á laugardagskvöldinu. Í ár fögnum við aldarafmæli Samkomuhússins í Ögri svo það verður veisla sem aldrei fyrr og viðburðir alla helgina.

On the 20th of June we will open our Café in the old Community House in Ögur, Ísafjarðardjúp, located in Westfjords. We serve traditional Icelandic cakes and bread along with soup of the day. The Café is open 10 - 18 every day.

Ögur Festival will take place on 18th - 20st of July, with the famous Ögurball taking place on Saturday night. This year will be special, as it is the old Community House's 100th birthday!

Address

Ögur
Ísafjörður
401

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Þjóðlegt með kaffinu posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Þjóðlegt með kaffinu:

Share